Barbarinn hárklippistofa Ármúla 19 og Smáratorgi
Skráðu þig í röðina hér að ofan og þú færð SMS þegar röðin fer að koma að þér. Einnig er hægt að skrá sig á staðnum í gegnum sjálfsafgreiðslustand og skreppa svo frá ef tími gefst.
Opið virka daga milli 9 og 17.
Verðlisti
Klipping (fullorðnir) | 7.950 kr. |
Klipping (börn, 12 ára og yngri) | 6.450 kr. |
Snoðklipping | 4.750 kr. |
Létt skeggsnyrting | 4.950 kr. |
Hárþvottur (með klippingu) | + 2.650 kr. |
Hárvörur
Við seljum hágæða hárvörur á hagstæðara verði.
Hársuga eftir klippingu!
Við erum eina stofan á Íslandi sem notar hársugu til að soga upp litlu óþægilegu hárin sem læðast oft niður á bak eftir herraklippingar.
Hársugunni er rennt yfir hárið eftir klippinguna og finnst flestum það mjög þægilegt!Spurningar og svör
Er hægt að panta tíma?
Nei. En þú getur kíkt á staðinn á milli kl. 9 og 16.45 eða skráð þig í röðina á barbarinn.is. Þar sérðu biðtímann á hverjum tímapunkti og hvar þú ert í röðinni.
Hvernig virkar röðin?
Röðin er til þess gerð að þú þurfir ekki að bíða lengi á staðnum. Auðveldast er að skrá sig í röðina á barbarinn.is. Þar slærð þú inn símanúmerið þitt og ert þar með í röðinni. Þar sérð þú biðtímann og hvar þú ert í röðinni. Ef biðin er lengri en 15 mín. færðu sms ca. 15 mín. áður en röðin kemur að þér. Einnig er hægt að koma á staðinn, skrá sig í röðina á sjálfsafgreiðslustandi þar og skreppa svo frá (t.d. útrétta í nágrenninu) á meðan þú bíður eftir að komi að þér. Röðin opnar kl. 9 og lokar kl. 16.45 eða þegar hún er orðin full.
Litið þið hár?
Nei. Okkar sterkustu efni eru hárgel og hárlakk.
Hvað er ánægjutrygging?
Ef þú ert ekki sátt/ur við klippinguna þína, þá hefur þú samband við okkur innan 3 daga og við leysum málið þannig að allir séu sáttir.
Get ég valið klippara?
Nei, almennt er það ekki hægt. En þegar komið er að þér er það smá séns ef sá klippari sem þú hefur áhuga á er um það bil að losna á sama tíma.
Störf í boði
Við erum vaxandi fyrirtæki og alltaf að leita að flinku og skemmtilegu starfsfólki, bæði í fullt starf og hlutastörf. Það skiptir okkur máli að vera góður, traustur og skemmtilegur vinnustaður. Okkur finnst líka nauðsynlegt að það sé gaman í vinnuni. Þess vegna ráðum við bara skemmtilegt fólk með jákvæða útgeislun og gerum okkur reglulega glaðan dag saman.
Við borgum góð laun og verðlaunum duglegt fólk. Vinnutími er almennt frá kl. 9-17 virka daga, en aðrar útfærslur koma til greina. Við bjóðum okkar fólki reglulega upp á námskeið og fræðslu. Af því að heilsa starfsfólks skiptir okkur máli fær allt okkar fólk líkamsræktarstyrk.
Hæfniskröfur
- Hafa lokið prófi í hársnyrtiiðn
- Góð íslensku og/eða enskukunnátta
- Drifkraftur
- Vandvirkni
- Jákvæðni
- Áreiðanleiki
- Frumkvæði
- Brosmildi
Um okkur
Okkar markmið er að bjóða vandaðar klippingar á skömmum tíma og hagstæðu verði.
Við lágmörkum biðtíma með því að bjóða upp á biðröð á vefnum og sms tilkynningar þegar kemur að þér. Við aukum ánægju með því bjóða upp á hársugu eftir herraklippingar, ásamt myndatökum af klippingum til að hægt sé að fá alveg eins klippingu næst þó þú lendir ekki á sama klippara.Rekstrarstjóri er Fjóla Valdís Árnadóttir, hárgreiðslumeistari.